Síðustu mánuðir hafa verið stappaðir af gleði og unnum við meðal annars að gerð fyrstu "alvöru" auglýsingunni okkar:
Við viljum þakka snillingunum hjá Motive og Eventa Films fyrir frábæra og gríðarlega faglega vinnu... við gætum ekki verið ánægðari og stoltari af útkomunni :) .
Við vorum auk þessa að bæta við nýrri vöru, sem er prentun á segul, og hafa viðtökurnar svo sannarlega verið æðislegar.
Nú getur þú meðal annars fengið dagatal á segul og smellt einum og einum mánuði upp á ískáp í einu og erum þau að okkar mati að koma rosalega vel út.
Segla er hægt að nota til að skreyta margt annað en gamla ísskápinn og fundum við nokkrar skemmtilegar hugmyndir á Pintrest. Ein af þeim skemmtilegri er ný útgáfa af korktöflunni góðu, nema hvað með járn plötu í stað korks og segull notaður til að festa á töfluna.
Leiðbeiningar um hvernig þetta var búið til er að finna hér,
Einnig er hægt að skella í eitt fjölskyldutré:
En til dæmis væri hægt að nota strimlana í tréð og klippa þá niður.
Við kvetjum ykkur að byrja að skapa og endilega deildu gleðinni með okkur... það er fátt sem gleður okkur meira :)
Áttu eftir að finna gjöf handa henni fyrir konudaginn?
Hvað með að frelsa nokkrar fallegar ljósmyndir af ykkur eða einhverju skemmtilegu sem þið hafið gert saman? Það er afskaplega einfalt að gera Ljósmyndabók með skemmtilegum minningum og augnablikum, við sendum þér pöntunina svo heim að dyrum eða þú getur komið og sótt til okkar bæði í Hafnarfirði og Reykjavík.
Þú getur líka búið til Myndabók með texta og til dæmis tekið nokkrar góðar myndir frá síðasta ári eða fríinu sem þið fóruð saman í.
Ljósmyndastrimlarnir okkar eru mjög vinsæl gjöf og er hægt að nota þá sem bókamerki, sem skraut og festa þá upp á ískáp svo eitthvað sé nefnt :)
Og að lokum langar okkur að benda þér á hálsmenin okkar en þú getur pantað þau með mynd af þér, henni, börnunum, dýrunum eða hverju öðru sem þér dettur í hug :)
Konudagsgjöfin verður leikur einn með Prentagram :)
Hvernig væri að gleðja bóndann með fallegum minningum á bóndadaginn. Við erum handviss um að þú eigir fullt, fullt, fullt af fallegum og skemmtilegum ljósmyndum í símanum eða tölvunni. Skrappbók með minningum ykkar frá síðasta ári er til dæmis að okkar mati mjög skemmtileg gjöf...
Fyrir ykkur sem eruð góð í "dúitjorself" þá fundum við þessa flottu hugmynd á Pinterest en svo er hægt að kaupa tómar bækur bæði í Tiger og föndurbúðum...
Fyrir ykkur sem eruð einsog við, með þumalputta á öllum, og mynduð enda með að líma saman blaðsíðurnar eða puttana á ykkur, að þá er fljótlegt og einfalt að panta myndabækur með texta hjá okkur. Athugið að heimsending tekur allt að þrjá virka daga þannig að endilega sæktu til okkar í Hafnarfjörð eða Reykjavík til að vera viss um að fá gjöfina í tæka tíð :)